Spurt & svarað
- Mig vantar strikamerki, hvað á ég að gera?
- Hvað kostar að vera aðili?
- Hvað tekur langan tíma að fá úthlutuðu EAN númeri?
- Útbýr EAN fyrir mig strikamerkin?
- Þarf ég að skrá vörunúmer mín hjá EAN?
- Af hverju greiða handhafar EAN númera árgjöld?
Mig vantar strikamerki, hvað á ég að gera?
Þú þarft að sækja um EAN númer og fylla út umsókn á vefsíðu GS1 á Íslandi og verður þér þá úthlutað einstöku EAN/UCC fyrirtækjanúmeri, sem er lykillinn að aukinni skilvirkni í aðfangakeðjunni. Fyrirtækjanúmerið gerir þér síðan kleift að útbúa strikamerkið. Nánari upplýsingar um fyrstu skrefin við að strikamerkja vörur.
Hvað kostar að vera aðili?
Verðið fer eftir því hversu margar mismunandi vörur þú þarft að merkja, sem segir til um hversu stóra númeraseríu þú þarft að sækja um til þess að auðkenna þínar vörur, auk þess sem greitt er árgjald af númerunum. Gjaldskrá GS1 á Íslandi Smelltu hér.
Hvað tekur langan tíma að fá úthlutuðu EAN númeri?
Þegar umsókn hefur borist ásamt greiðslu, tekur afgreiðsla hennar venjulega um 1-2 virka daga. Ekki er heimilt að úthluta númeri fyrr en greiðsla hefur borist.
Útbýr GS1 fyrir mig strikamerkin?
GS1 útbýr ekki strikamerkin. Þegar þú hefur fengið úthlutuðu EAN fyrirtækjanúmeri, getur þú útdeilt númerum úr úthlutaðri númeraseríu á þínar vörur. Síðan er hægt að fá strikamerkin prentuð hjá öllum þeim sem hafa yfir að ráða hugbúnaði fyrir strikamerki eða prentað strikamerkin sjálfur.
Þarf ég að skrá vörunúmer mín hjá GS1?
Nei, vörunúmerunum sem þú úthlutar á þínar vörur er haldið utan um innan þíns fyrirtækis. Þau eru ekki skráð hjá GS1. Þú þarft einungis að miðla þeim upplýsingum til viðskiptavina þinna.
Af hverju greiða handhafar GS1 númera árgjöld?
Árgjöld handhafa EAN númera gera GS1 á Íslandi, kleift að taka þátt í þróun vaxandi þarfa félagsmanna auk þess að taka þátt í alheims samtökunum sem á einkvæman hátt auðkenna það GS1 fyrirtækjanúmer sem þú ert handhafi að. GS1 þróar einnig lausnir við vandamálum í virðiskeðjunni, kemur á fót og viðheldur alheims stöðlum, býður upp á fræðslu og þjálfun, er í forystuhlutverki hvað varðar tækniþróun og tekur þátt í samstarfi við GS1 International m.a. við framkvæmd á notkun staðla í rafrænum viðskiptum, sem notaðir eru af yfir milljón fyrirtækjum um allan heim.
Virði EAN númerakerfisins felst m.a. í því að tryggt er að engar tvær vörur, hvar sem er í heiminum, hafi sama strikamerkjanúmer.