lesa frétt
Frítt grunnnámskeið fyrir félaga GS1 Ísland
GS1 Ísland býður félögum sínum uppá frítt námskeið um strikamerkingar og kynningu á GS1 Ísland.
Farið verður í eftirfarandi þætti :
- uppbyggingu númerakerfis GS1

- strikamerkingar fyrir mismunandi pakkningastig vörunnar
- grunnur að rekjanleika með aðferðum GS1
- kynning á EPC örmerkjum
- Interneti vörunnar (Internet of things).
Námskeið fara fram í Húsi Verslunarinnar 9. hæð og eru 2 kennslustundir.
Námskeiðið er hentugur undirbúningur undir framhaldsnámskeið á sviði strikamerkinga og vörustjórnunar.
Félagsmenn eru hvattir til að skrá sig á info@gs1.is
Haldin verða tvö GS1 grunnnámskeið:
Fim. 2. apríl 2009 kl. 10:00 - 12:00 Uppselt
Mið. 29. apríl 2009 kl. 10:00 - 12:00 ath. breyttan tíma.
Kennari: Benedikt Hauksson verkfræðingur
Þá er fyrirhugað að halda framhaldsnámskeið í stöðlum GS1
Hröð útbreiðsla GS1 staðlanna á sviði vörustjórnunar við rekjanleika og merkingar ytri umbúða hefur kallað á þörf á umfangsmeiri námskeiðum.
Ákveðið hefur verið að bjóða uppá ýtarlegri námskeið í framhaldi af grunnnámskeiði þar sem skýrð eru nánar notkun grunnhugtaka GS1 ss. GTIN, SGTIN, GLN og SSCC.
Sérstök áhersla verður lögð á merkingu ytri umbúða, merkingar vörubretta, kröfur heildsala og flutningafyrirtækja og ávinning aðila sem koma að aðfangakeðjunni.
Dagsetning ákveðin síðar
Rekjanleiki í matvælaiðnaði með aðferðum GS1
Þá er fyrirhugða tveggja daga námskeið ( 2 * 4 tímar) um rekjanleika í matvælaiðnaði með aðferðum GS1.
Námskeiðin verða í formi fyrirlestra fyrri daginn og úrlausna verkefna seinni daginn.
Hámarksfjöldi 12 á námskeiði.
Farið verður í :
- Strikamerki - upprifjun
- GS1-128 strikamerki og númerakerfi GS1
- DataBar við rekjanleika neytendavara
- Skilgreiningar á rekjanleika, innri rekjanleiki og ytri rekjanleiki
- GS1 staðlar til að uppfylla 178/2001 reglugerð evrópubandalagsins
- Skorkort fyrirtækja
- Strikamerkingar sem hluti af gæðahandbók fyrirtækja
- Gagnaskráningar og gagnsæi í aðfangakeðjunni með örmerkjum og EPC-IS
Dagsetning ákveðin síðar