The Global Language of Business
fréttir

Þátttaka GS1 í Evrópu með ESB í verkefni um stafrænt vöruvegabréf

20.1.2023
|
Andri Sigurðsson
Verslanir og veitingaþjónusta
GS1 Gagnalaug

Þann 30. mars 2022 kynnti framkvæmdastjórn Evrópusambandsins (e. European Commission) áform um nýja reglugerð um sjálfbærari vörur, Ecodesign for Sustainable Product Regulation. Reglugerðin byggir á vinnu Evrópusambandsins vegna EU Green Deal, sem er markmið um að Evrópa verði fyrsta svæði heimsins sem nær fullu loftslagshlutleysi, og verði það gert fyrir árið 2050.

Drögin að reglugerðinni innihalda stafrænt vöruvegabréf evrópusambandsins (e. EU digital product passport) og hefur GS1 í Evrópu tekið virkan þátt í mótun þeirrar hugmyndar síðastliðin tvö ár.
Sjá nánar hugmyndafræðina á bakvið rafræna vöruvegabréfið í myndbandinu hér að neðan.

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins setti af stað verkefnahóp undir nafninu CIRPASS fyrir verkefnið. Vinnan við útfærslu rafræna vöruvegabréfsins hófst formlega þann 5. október 2022 þegar 30 samstarfsaðilar, sem eru fulltrúar þúsunda stofnana, iðnaðar, rannsókna og upplýsingatæknifyrirtækja, sóttu stofnfund verkefnisins. Verkefnið er áætlað að taki 18 mánuði og mun það skila af sér til framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins greinagóðri lýsingu á rafræna vöruvegabréfinu, gagnamódeli fyrir vegabréfið og útfærslu á rafrænu kerfi sem mun sýna fram á ávinning í þágu hringrásarhagkerfis innan Evrópu.

Heildar markmið með rafrænu vöruvegabréfi er að takmarka áhrif sem vörur hafa á umhverfið, með því að auka líftíma hverrar vöru og auka notaglidi íhluta vöru sem dæmd er ónothæf.

Lestu meira um rafræna vöruvegabréfið hér.

GS1 þjónustur í fréttinni
No items found.

GS1Trade Image

GS1Trade Image sørger for billeder til dine produkter i den højeste kvalitet. Det er billigt og nemt. Herunder finder du alle de informationer, du skal bruge for at komme i gang med GS1Trade Image.

GS1 Gagnalaug

GS1 Gagnalaug er kerfi sem eykur skilvirkni og gæði gagna í þínum rekstri.

GS1 Gagnalaugin er gagnragrunnur sem nú telur yfir 5.000 vörur þar sem framleiðendur og innflutningsaðilar deila upplýsingum. GS1 Gagnalaug tryggir aðgengi að öllum gögnum á einum stað þegar þínir viðskiptavinir þurfa á þeim að halda. Þannig sparast tími sem áður fór í að senda frumvörugögn og myndir af vörum handvirkt.

Kerfið byggir á alþjóðlegum stöðlum og reglugerðum.

GS1Trade Sync

Ved at lægge produktstamdata og -fotos i GS1Trade Sync, som er en del af det globale GDSN-netværk, skaber du en effektiv hverdag og gør data nemt tilgængelig for jeres handelspartnere, når de har brug for det.

No items found.

GS1Trade Exact

Få kvalitetstjekket dit fysiske produkt op mod de stamdata, du har angivet i GS1Trade Sync. Alle godkendte produkter får et kvalitetsstempel i GS1Trade Sync, som jeres kunder kan se.

No items found.

GS1Trade Transact

GS1Trade Transact er din brugervenlige EDI-løsning, som systematik og effektivt varetager digital modtagelse af ordrer og afsendelse af dokumenter til dine kunder.

GTIN

GTIN Stendur fyrir "Global Trade Item Number" og er sú talnaruna sem sést undir strikamerkinu.

GTIN er hluti af alþjóðlegum GS1 staðli og gerir að hægt sá að auðkenna vörur hvort sem er stafrænar eða raunverulegar. Þannig virkar strikamerkið út um allan heim - í gegnum alla aðfangakeðjuna.

GTIN

På denne side finder du information om, hvordan et GTIN-nummer bruges. Et GTIN-nummer er et globalt, unikt, varenummer, som bruges til at identificere, hvilken vare der er tale om.

GLN

GLN auðkenni (EAN kennitala) er notað til að auðkenna lagalegar, stafrænar eða raunverulegar staðsetningar. GLN auðkenni gekk á árum áður undir heitinu "EAN kennitala". Staðsetningin getur verð sendandi, móttakandi, kaupandi, söluaðili, framleiðandi, greiðslustaðsetning, verslun eða innri deild.

Á Íslandi er GLN helst notað í tengslum við EDI samskiptastaðalin og er því oft notað í bókhaldskerfum.

GLN

På denne side finder du information om, hvordan et GLN-nummer bruges. Et GLN-nummer er et globalt, unikt, varenummer, som bruges til at identificere, hvilken vare der er tale om.

Nýjustu fréttirnar