Með GS1 Vörugreind setur þú einfaldlega inn myndir af vörunni þinni og gervigreindin les vöruupplýsingarnar beint af umbúðunum og skilar þeim á réttan stað í GS1 Gagnalaug.
Við vitum að áreiðanleiki gagna skiptir gríðarlega miklu máli svo notandi þarf að fara yfir upplýsingar sem gervigreindin fyllir út og staðfesta eða leiðrétta áður en þær eru sendar yfir í GS1 Gagnalaug. Með þessari lausn sparast tími við handvirka skráningu og gæði vörugagna aukast.
GS1 Vörugreind er í boði fyrir notendur GS1 Gagnalaugar.
Skráning vöruupplýsinga hefur hingað til verið handavinna: lesa af umbúðum eða leita í innri kerfum fyrirtækisins, slá inn í kerfið og vona að engin villa slæðist með. GS1 Vörugreind einfaldar þetta ferli til muna. Þú hleður inn myndum af vörunni og gervigreindin sér um afganginn.
Þú setur inn myndir af vörunni þinni í GS1 Vörugreind. Gervigreindin les textann beint af umbúðunum: innihaldslýsingu, næringargildi, ofnæmisvalda, geymsluleiðbeiningar, vottanir og fleira, og raðar upplýsingunum sjálfkrafa í rétt svið í GS1 Gagnalaug.
Vörugreindin stingur einnig upp á GPC-vöruflokkun (GS1 Global Product Category) með rökstuðningi, svo varan þín flokkast rétt frá upphafi.
Ekkert fer inn í GS1 Gagnalaug án þinnar staðfestingar. Þú ferð yfir hvert atriði fyrir sig og samþykkir eða leiðréttir áður en upplýsingarnar eru vistaðar.
Með því að smella á reit sérðu á myndinni af umbúðunum nákvæmlega hvaðan textinn kemur, þannig er auðvelt og fljótlegt að sannreyna hverja upplýsingu.
Handvirk skráning vöruupplýsinga er tímafrek og villugjörn. Með GS1 Vörugreind fyllast reitirnir sjálfkrafa og þú staðfestir. Það sparar tíma og dregur úr líkum á innsláttarvillum.
Upplýsingarnar skila sér beint í GS1 Gagnalaug þar sem viðskiptavinir þínir og samstarfsaðilar nálgast þær. Réttar upplýsingar á einum stað fyrir alla.
GS1 Vörugreind er í boði fyrir notendur GS1 Gagnalaugar. Hafðu samband við GS1 Ísland til að fá nánari upplýsingar um aðgang.
Við höfum sett upp tvö sýnidæmi þar sem þú getur séð GS1 Vörugreind í verki. Smelltu á hnappana hér að neðan, skoðaðu hvernig gervigreindin les af umbúðunum og prófaðu sjálf/ur að samþykkja eða leiðrétta.
GS1 Vörugreind er í boði endurgjaldslaust fyrir notendur GS1 Gagnalaugar. Hafðu samband við okkur til að fá nánari upplýsingar og aðgang að lausninni.
Vörugreindin les meðal annars vöruheiti, vörumerki, framleiðanda, innihaldslýsingu (á fleiri en einu tungumáli), ofnæmisvalda, næringargildi, nettóinnihald, geymsluleiðbeiningar, vottanir, markaðsskilaboð og stingur auk þess upp á GPC-vöruflokkun. Í raun allar upplýsingar sem eru að finna á umbúðum vörunnar þinnar.
Gervigreindin er mjög nákvæm en þú hefur alltaf síðasta orðið. Hvert atriði er borið undir þig til samþykktar og þú sérð á mynd af umbúðunum hvaðan hver texti kemur, svo auðvelt er að sannreyna niðurstöðurnar.
GS1 Vörugreind er í beta útgáfu og við veitum aðgang í samráði við notendur. Hafðu samband í síma 511 3011 eða á netfangið info@gs1.is og við komum þér af stað.
Viltu vita meira um GS1 Vörugreind? Sérfræðingar GS1 Ísland eru tilbúnir að leiðbeina þér, sýna þér hvernig þjónustan virkar og hjálpa þér að komast af stað.
Síminn er opinn alla virka daga frá kl. 09:00 til kl. 16:00.
511 3011
Eins getur þú sent okkur línu á info@gs1.is