The Global Language of Business

Veltutenging

Við fáum reglulega spurningar frá fyrirtækjum sem snúa að því hvers vegna árgjald GS1 Ísland er miðað við heildarveltu fyrirtækja, en ekki eingöngu við veltu þeirra vara sem bera strikamerki. Þetta er eðlileg spurning og hér viljum við skýra forsendurnar á bak við þessa nálgun.

GS1 er sameiginlegur innviður

GS1-kerfið er ekki gjald fyrir einstök strikamerki eða tilteknar vörur. Það er sameiginlegur innviður atvinnulífsins sem tryggir samræmda auðkenningu fyrirtækja, vara, eininga og upplýsinga í viðskiptum.

Strikamerki eru sýnilegasti hluti kerfisins, en virði GS1 liggur í því að kerfin í virðiskeðjunni geti treyst hver á annan og „talað saman“ á sameiginlegu tungumáli.

GS1-fyrirtækjanúmerið er grundvöllur

Aðild að GS1 veitir fyrirtæki GS1-fyrirtækjanúmer, sem er grunnur allra strikamerkja og GS1-auðkenna. Þetta númer:

  • er bundið við fyrirtækið, ekki einstakar vörur,
  • skilgreinir ábyrgð og eignarhald upplýsinga,
  • nýtist óháð vörufjölda, vöruflokkum eða söluleiðum.

Því er eðlilegt að gjaldtaka miðist við fyrirtækið í heild, en ekki aðeins hluta af starfseminni.

Virði GS1 tengist umfangi rekstrarins

Virði GS1 felst ekki aðeins í því að merkja vörur, heldur í því að:

  • auðvelda viðskipti milli fyrirtækja,
  • tryggja réttar upplýsingar um uppruna, innihald og umbúðir,
  • skapa samhæfni milli kerfa viðskiptavina, birgja og dreifingaraðila,
  • styðja við sjálfvirkni, rekjanleika og stafræna umbreytingu.

Því stærra sem fyrirtæki er og því meiri sem umsvif þess eru, þeim mun meiri er yfirleitt óbeinn og beinn ávinningur af samræmdum stöðlum og sameiginlegum innviðum.

Heildarvelta er einfaldur og sanngjarn mælikvarði

Heildarvelta er notuð sem grunnur að árgjaldi þar semað hún endurspeglar stærð og umfang rekstrar, tryggir jafnræði milli fyrirtækja í ólíkum atvinnugreinum og er einföld í framkvæmd og eftirliti.

Að miða gjald eingöngu við veltu merktra vara myndi skapa óljós mörk, mismunandi túlkanir og aukið flækjustig - bæði fyrir fyrirtæki og GS1 Ísland.

Sameiginleg ábyrgð á sameiginlegum innviðum

GS1-kerfið má líkja við aðra samfélagslega og viðskiptalega innviði sem flestir þekkja. Vegakerfið nýtist ekki aðeins þeim sem aka daglega,

Á sama hátt nýtur allt atvinnulífið góðs af sameiginlegu auðkenningarkerfi GS1 – jafnvel þótt notkunin sé mismikil milli fyrirtækja, vöruflokka eða tímabila. Kerfið skapar traust, skilvirkni og samhæfni sem styður við viðskipti í heild sinni.

Árgjald GS1 endurspeglar því ekki einstaka notkun, heldur þátttöku í og ábyrgð á sameiginlegum innviðum sem gera nútímaviðskipti möguleg.

Við veitum ráðgjöf

Ef þú hefur spurningar um gjaldskránna okkar eða vilt vita meira um það hvernig GS1 staðlar og þjónustur geta hjálpað þér og þínu fyrirtæki að skapa verðmæti tökum við fyrirspurnum fagnandi.

Síminn er opinn alla virka daga frá kl. 09:00 til kl. 16:00.
511 3011

Eins getur þú sent okkur línu á info@gs1.is