The Global Language of Business
Af hverju er GTIN 14 stafir en EAN-13 strikamerkið 13?

Í hnotskurn

Númerið undir EAN-13 strikamerkinu er 13 stafir, en í GS1 Vörukladda, GS1 Gagnalaug og öðrum gagnakerfum er GTIN skráð með 14 stöfum. Það er ekki nýtt eða annað númer. Styttri GTIN eru einfaldlega fyllt með núllum fremst svo þau passi í 14 stafa reit. Númerið, og vartalan, eru þau sömu.

Dæmi: GTIN-13 5691234567893 er skráð sem 05691234567893.

GTIN er til í fjórum lengdum

  • GTIN-13: algengast á Íslandi og í Evrópu. Prentað sem EAN-13 strikamerki og skannað á afgreiðslukassa.
  • GTIN-8: fyrir mjög litlar umbúðir. Prentað sem EAN-8.
  • GTIN-12: notað í Bandaríkjunum og Kanada. Prentað sem UPC-A eða UPC-E.
  • GTIN-14: fyrir safneiningar eins og kassa og ytri umbúðir sem ekki eru skannaðar á afgreiðslukassa. Prentað sem ITF-14 eða GS1-128.

Af hverju 14 stafir í gagnakerfum?

Gagnakerfi þurfa einn reit sem rúmar allar gerðir GTIN. Þess vegna er reglan sú að GTIN er alltaf geymt sem 14 stafir og styttri númer fá núll fremst:

  • GTIN-13 5691234567893 verður 05691234567893 (eitt núll)
  • GTIN-12 012345678905 verður 00012345678905 (tvö núll)
  • GTIN-8 12345670 verður 00000012345670 (sex núll)
  • GTIN-14 15691234567890 helst óbreytt

Sama gildir í tvívíðum strikamerkjum og GS1-128. Þar er GTIN kóðað á eftir auðkenninu (01) og alltaf með 14 stöfum, til dæmis (01)05691234567893.

Vissir þú? Vartalan breytist ekki þegar núlli er bætt fremst. Núll hefur engin áhrif á útreikninginn, svo 5691234567893 og 05691234567893 eru nákvæmlega sama auðkennið.

GTIN-14 með vísistaf

Þegar GTIN-14 byrjar ekki á núlli er fremsti stafurinn vísistafur (e. indicator digit). Hann er notaður til að búa til GTIN fyrir safneiningu, til dæmis kassa með 12 stykkjum, út frá GTIN söluvörunnar:

  • Söluvara: GTIN-13 5691234567893
  • Kassi: vísistafur 1 settur fremst, gamla vartalan tekin út og ný reiknuð. Útkoman er 15691234567890.

Vísistafir 1 til 8 eru notaðir fyrir safneiningar með föstu magni og 9 fyrir vörur í breytilegu magni. Hér breytist vartalan, því talnarunan er önnur. Einnig má úthluta kassanum sjálfstæðu GTIN-13 úr þínu fyrirtækjaforskeyti.

Algengar villur

  • Núll sett aftast í stað fremst. Þá verður til annað, ógilt númer.
  • GTIN-14 stytt með því að skera aftan af í stað þess að fjarlægja núllið fremst.
  • Vartalan ekki reiknuð upp á nýtt þegar vísistafur er settur fremst.
  • EAN-13 strikamerki prentað á kassa með GTIN-14 sem byrjar á 1 til 9. Slíkt númer passar ekki í EAN-13 og á að prenta sem ITF-14 eða GS1-128.
  • Nýtt GTIN búið til fyrir söluvöru bara af því að kerfið biður um 14 stafi. Það nægir að setja núll fremst.

Nánar um GTIN og vartölu:

Læs vejledning her

arrow-right-circle
Download PDF

Har du stadig brug for hjælp? Så tag fat i GS1 Denmarks support team. Vi står altid klar til at hjælpe.

Þarftu aðstoð?
511 3011
info@gs1.is

Af hverju er GTIN 14 stafir en EAN-13 strikamerkið 13?

Innihald

Nýjustu leiðbeiningar

|
3
 min
Af hverju er GTIN 14 stafir en EAN-13 strikamerkið 13?
Núll fremst, sama númer: svona virkar 14 stafa GTIN í gagnakerfum
This is some text inside of a div block.
|
3
 min
Ljósbil á strikamerkjum: autt svæði sem skiptir máli
Hvað er ljósbil (e. quiet zone), hversu stórt á það að vera og algengar villur
This is some text inside of a div block.
|
6
 min
Leiðbeiningar fyrir staðsetningu EAN strikamerkja
Hver er besta staðsetningin fyrir strikamerkið á vörunni þinni?
This is some text inside of a div block.