The Global Language of Business
EAN-13 strikamerki sem byrjar á 20 inni í húsi, táknmynd fyrir innri strikamerki
Innri strikamerki: merkingar fyrir vörur í eigin verslun

Í hnotskurn

Innri strikamerki eru númer sem fyrirtæki býr til sjálft og notar á vörur sem eru eingöngu seldar í eigin verslun. Þau krefjast ekki úthlutunar frá GS1. Öll innri strikamerki byrja á tölustöfunum 20, næstu 10 tölustafi velur þú sjálf/ur og aftasti stafurinn er vartala.

Ekkert er haldið utan um hvaða fyrirtæki nota hvaða innri strikamerki. Þess vegna má eingöngu nota þau innan eigin verslunar, það getur skapað vandamál ef þau fara á flakk.

Hvenær duga innri strikamerki?

Innri strikamerki henta þegar varan fer aldrei út fyrir þín eigin kerfi:

  • Vörur sem eru framleiddar og seldar eingöngu í eigin verslun eða verslunum, t.d. réttir úr eldhúsi verslunarinnar, vörur pakkaðar á staðnum eða eigin minjagripir í eigin sölustöðum.
  • Millivörur og hráefni sem þarf að skanna í innri ferlum, t.d. á lager eða í framleiðslu.
  • Tilraunavörur og tímabundnar merkingar innanhúss.

Um leið og vara á að seljast hjá öðrum verslunum, hjá endursöluaðilum, í vefverslunum eða erlendis þarf hún GTIN frá GS1. Innri númer eru ekki einkvæm utan þíns fyrirtækis og sama númer getur verið í notkun í næstu verslun á allt annarri vöru.

Gott er að vita að fyrirtæki sem eru þegar með GTIN áskrift geta líka einfaldlega notað úthlutuð GTIN á innanhússvörurnar sínar. Þá er eitt samræmt númerakerfi í öllum kerfum og vörurnar eru tilbúnar ef þær fara síðar í almenna sölu.

Svona býrð þú til innra strikamerki

  1. Byrjaðu á 20. Öll innri strikamerki þurfa að byrja á tölustöfunum 20.
  2. Veldu næstu 10 tölustafi. Þú ræður hvaða 10 tölustafir koma þar á eftir, t.d. út frá vörunúmerunum í þínu eigin kerfi.
  3. Reiknaðu vartöluna. Þrettándi og jafnframt síðasti stafurinn er vartala (e. check digit) sem er reiknuð út frá hinum tölunum. Settu fyrstu 12 stafina inn í vartölureikni GS1 og hann skilar þér 13. tölunni.
  4. Búðu til strikamerkið sjálft. Hægt er að nota eitthvað af þeim ótal tólum sem finnast á netinu, t.d. strikamerkjagerð TEC-IT. Til að fá hefðbundið strikamerki skal velja EAN-13 sem tegund.

Dæmi: ef fyrstu 12 stafirnir hjá þér væru 201234567890, þá væri 13. stafurinn 3 og strikamerkjarunan því 2012345678903.

Það sem þarf að varast

  • Innri númer mega aldrei fara út fyrir eigin verslun. Ef vara með innra númeri endar í annarri verslun getur hún skannast sem allt önnur vara.
  • Haltu skrá yfir eigin númer. Innri númer eru á ábyrgð fyrirtækisins og góð skráning kemur í veg fyrir að sama númer sé notað tvisvar.
  • Ekki endurnýta númer strax. Gefðu númerum sem detta úr notkun góðan tíma áður en þau eru notuð aftur, annars geta gamlar færslur í kassakerfinu valdið ruglingi.
  • Ætlarðu í almenna sölu síðar? Þá borgar sig að sækja um GTIN strax í vefverslun GS1 Íslands frekar en að merkja vöruna tvisvar.
Vissir þú? Innra strikamerki er 13 stafir alveg eins og GTIN, en byrjunin 20 segir kerfum að númerið sé innanhússnúmer sem gildir ekki á milli fyrirtækja.

Nánar um skylt efni:

Læs vejledning her

arrow-right-circle
Download PDF

Har du stadig brug for hjælp? Så tag fat i GS1 Denmarks support team. Vi står altid klar til at hjælpe.

Þarftu aðstoð?
511 3011
info@gs1.is

Innri strikamerki: merkingar fyrir vörur í eigin verslun

Innihald

Nýjustu leiðbeiningar

EAN-13 strikamerki sem byrjar á 20 inni í húsi, táknmynd fyrir innri strikamerki
|
4
 min
Innri strikamerki: merkingar fyrir vörur í eigin verslun
Innri strikamerki byrja á 20 og eru eingöngu fyrir vörur sem seldar eru í eigin verslun
This is some text inside of a div block.
|
3
 min
Af hverju er GTIN 14 stafir en EAN-13 strikamerkið 13?
Núll fremst, sama númer: svona virkar 14 stafa GTIN í gagnakerfum
This is some text inside of a div block.
|
3
 min
Ljósbil á strikamerkjum: autt svæði sem skiptir máli
Hvað er ljósbil (e. quiet zone), hversu stórt á það að vera og algengar villur
This is some text inside of a div block.