Þrennt þarf að vera í lagi til að mynd nýtist í GS1 Gagnalaug: skráarnafnið er rétt, myndin er í réttri stærð og sniði, og bakgrunnurinn er hvítur. Leiðbeiningarnar hér að neðan fara í gegnum þetta skref fyrir skref.
Fljótlega útgáfan: mynd af framhlið vörunnar, hvítur bakgrunnur, 900 x 900 pixlar hið minnsta, vistuð sem JPEG og nefnd 05691234567893_A1C1.jpg, þar sem talan er GTIN vörunnar með 14 stöfum.
Skref 1: Taktu myndina eða fáðu hana frá framleiðanda
Myndaðu vöruna eins og hún lítur út í hillunni, framhliðina beint framan frá.
Bakgrunnurinn á að vera hreinn hvítur, RGB 255,255,255. Í PNG og TIFF má bakgrunnurinn líka vera gegnsær.
Varan á að fylla um 95% af myndfletinum og vera miðjuð. Ekki hafa stórar auðar spássíur.
Lýsingin á að vera jöfn og hvít, engin gul eða blá slikja. Skuggar og speglun mega ekki hylja texta eða vörumerki.
Ekkert má vera á myndinni sem er ekki á vörunni sjálfri: engin verðmerki, engir límmiðar, ekkert vatnsmerki, enginn texti frá þér og engir rammar.
Myndin á að sýna vöruna eins og neytandinn kaupir hana. Ef þú vilt sýna innihaldið utan umbúða er það önnur mynd, sjá kaflann um fleiri myndir neðar.
Framhliðin er sú hlið sem blasir við neytandanum í hillunni. Mynd úr GS1 Product Image Specification Standard.
Skref 2: Athugaðu stærð og snið
Vefmynd (algengasta útgáfan): 900 x 900 pixlar hið minnsta, mest 2400 x 2400. Myndin á að vera ferningur.
Hágæðamynd (fyrir prentun og stóra smásala): 2401 x 2401 upp í 4800 x 4800 pixlar.
Snið: JPEG eða PNG fyrir vefmyndir. Ef þú vistar JPEG skaltu velja hæstu gæði (96 af 100 eða 10 af 12 í Photoshop). Hágæðamyndir eru geymdar sem TIFF með LZW þjöppun.
Ekki stækka litla mynd upp í 900 x 900. Myndin verður óskýr og hún nýtist ekki. Fáðu frekar upprunalegu myndina frá framleiðanda.
Dæmi um rétta vefmynd: varan miðjuð á hvítum bakgrunni og fyllir myndflötinn. Mynd úr GS1 Product Image Specification Standard.
Skref 3: Nefndu skrána rétt
Nafnið á skránni er atriðið sem flestir gera vitlaust. Það segir kerfinu hvaða vöru myndin tilheyrir og hvað hún sýnir, og er alltaf byggt eins upp:
05691234567893 er GTIN vörunnar með 14 stöfum. Ef strikamerkið er 13 stafir setur þú núll fremst. Ekki aftast.
A þýðir að þetta sé aðalmynd fyrir vef. Hágæðamynd fær C í staðinn.
1 þýðir framhlið.
C þýðir að myndin sé tekin beint framan frá, ekki á ská.
1 þýðir að varan sé í umbúðunum sínum.
Fyrir venjulega söluvöru sem er mynduð framan frá er nafnið því alltaf GTIN_A1C1.jpg.
Vissir þú? Ef skráin heitir „vara_forsida_ny_FINAL2.jpg“ veit kerfið ekkert hvaða vöru hún tilheyrir eða hvað hún sýnir. Rétt nafn sparar þér og viðtakendum gagnanna mikla vinnu.
Skref 4: Settu myndina inn á vöruna í GS1 Gagnalaug
Farðu í Items og opnaðu vöruna sem myndin tilheyrir.
Veldu Assets í vinstri valmyndinni. Þá sérðu þær myndir og skjöl sem eru þegar á vörunni.
Smelltu á Add asset efst til hægri.
Undir Type velur þú Product image. Aðrar gerðir í listanum eru til dæmis Product image with supporting elements og Product label image.
Undir Source velur þú Upload files ef myndin er á tölvunni þinni, eða Import from URL ef hún liggur á vefslóð.
Dragið skrána á reitinn Drop file here or browse, eða smelltu á hann og veldu skrána.
Smelltu á Save í glugganum og vistaðu svo vöruna sjálfa.
Birtu vöruna að nýju með venjulegu birtingarflæði svo viðtakendur fái uppfærð gögn.
Margar myndir í einu
Ef þú ert með myndir fyrir margar vörur er fljótlegra að nota Media flipann efst í viðmótinu:
Upload: dragið margar skrár inn í einu á reitinn Drop file here or browse.
Media items: yfirlit yfir allar myndir þar sem þú sérð staðlaða skráarnafnið (Standard file name), gerðina, sjónarhornið og hvort myndin sé aðalmynd vörunnar.
Þess vegna borgar sig að nefna allar skrárnar rétt áður en þú hleður þeim upp. Þá er vinnan búin þegar skrárnar eru komnar inn.
Viltu stíga lengra: fleiri hliðar
Framhliðin er lágmarkið og dugar fyrir flesta. Stærri smásalar og vefverslanir biðja oft um fleiri hliðar. Þá heldur nafnið sér en einn stafur breytist:
Bakhlið: GTIN_A7C1.jpg
Vinstri hlið: GTIN_A2C1.jpg
Hægri hlið: GTIN_A8C1.jpg
Séð ofan frá: GTIN_A3C1.jpg
Séð neðan frá: GTIN_A9C1.jpg
Varan utan umbúða: GTIN_A1C0.jpg
Kassi utan um margar einingar: GTIN_A1CA.jpg, þá er GTIN kassans notað
Hliðarnar sem staðallinn skilgreinir og númerin sem þeim tilheyra. Mynd úr GS1 Product Image Specification Standard.
Bakhliðin er sú gagnlegasta að bæta við, því þar er innihaldslýsingin, næringargildin og ofnæmisvaldarnir sem neytendur leita að.
Algengar villur
Skráarnafnið er 13 stafir í stað 14. Mundu núllið fremst.
Myndin er ekki ferningur, til dæmis 1200 x 800 pixlar.
Bakgrunnurinn er gráhvítur eða með skugga í hornunum í stað hreins hvíts.
Myndin er skjáskot úr vefverslun eða tekin á síma á eldhúsborði.
Varan er lítil í miðjunni með breiðar auðar spássíur í kring.
Verðmiði, tilboðsmerking eða vatnsmerki er á myndinni.
Sama mynd er notuð fyrir margar vörur sem hafa ólíkt GTIN.