
Ljósbil (e. quiet zone) er autt svæði sem verður að vera sitt hvorum megin við strikamerki. Skanninn notar ljósbilið til að finna hvar strikamerkið byrjar og endar. Ef texti, rammi, mynd eða brún umbúða fer inn í ljósbilið getur skanninn átt erfitt með að lesa merkið, eða lesið það alls ekki.
Ljósbilið er hluti af strikamerkinu. Það á alltaf að gera ráð fyrir því þegar strikamerki er sett á umbúðir eða miða.
Ljósbil er mælt í einingabreiddum (X). Einingabreidd er breidd mjósta striksins í strikamerkinu. Þess vegna breytist ljósbilið með stærð merkisins: ef strikamerkið er stækkað eða minnkað, þá stækkar eða minnkar ljósbilið í sömu hlutföllum.
Dæmi fyrir EAN-13:
Tölurnar eru lágmark samkvæmt GS1 General Specifications. Það sakar ekki að hafa ljósbilið rýmra.
Vissir þú? Á EAN-13 má prenta táknið „>“ í hægra ljósbilið og á EAN-8 „<“ og „>“ sitt hvorum megin. Táknin sýna hvar ljósbilið endar og hjálpa til við að enginn annar texti eða grafík fari þar inn.
Besta leiðin til að tryggja að strikamerkið skannist er að prófa það á prufuprentun, helst á réttu efni og með skanna eins og þeim sem notaðir eru í verslunum. Fáðu prentsmiðjuna til að staðfesta að ljósbilið haldist eftir skurð og pökkun.
Nánar um stærðir og staðsetningu:
Har du stadig brug for hjælp? Så tag fat i GS1 Denmarks support team. Vi står altid klar til at hjælpe.



